27.11.08

Skrípó, 27.11.08: El Padrino

Það er sérstakur dagur og má Davíð ekki neita neinni bón... Davíð í líki Vito Corleone: Hvað get ég gert fyrir þig? Kisa: Mjá. Lárus Welding: Risastór lán okkar eru á gjalddaga eftir tvær vikur og okkur vantar fyrirgreiðslu. Davíð: Öll þessi ár hefur þér aldrei dottið í hug að skrifa um mig fallega afmælisgrein eða bjóða mér í kaffi. Þú sýnir ekki einu sinni þá lágmarksvirðingu að kalla mig Guðföður. Hefðir þú komið fram við mig sem vin hefðu aðrir vitað af vinskap okkar og hikað við að fara gegn þér. Davíð: Fyrirgreiðslu færðu ekki. En ég skal kaupa ráðandi hlut í bankanum fyrir túkall ef þú kyssir hringinn.. Lárus: Takk, elsku Guðfaðir.

1 ummæli:

kollatjorva said...

frábærar myndasögur hjá þér. Takk ..