31.12.08

27.12.08

24.12.08

Skrípó, 24.12.08

Óska löndum mínum, viðhlæjendum jafnt og viðfangsefnum, gleðilegra og áhyggjulausra jóla!

23.12.08

22.12.08

21.12.08

16.12.08

Skrípó, 16.12.08

Spurning hvor er meira skrípó. Þessi forsíða eða sú sem mun birtast? Forsíða DV: Leiðari, Jón Trausti Reynisson, Við brugðumst ykkur, vol. 2. Hreinn Loftsson: DV er enn óháð blað. 12 síður af viðskiptafréttum. Valdar fregnir úr viðskiptalífi Íslands. Hver kom nálægt hruni Íslands? Ekki eigandi DV eða vinir hans. Þetta var alltsaman Davíð Oddssyni að kenna. Og Björgólfi Guðmundssyni. Dagblaðið Vísir, treyst af 5% þjóðarinnar, sem er alveg nóg. Reynir Traustason boðar nýja ritstjórnarstefnu: Lúffaði fyrir valdi auðmanna. Aðeins þeir sem ekki hafa efni á að verja sig þurfa að lúta ægivaldi DV.

14.12.08

12.12.08

6.12.08

Skrípó, 06.12.08: Að þekkja sinn vitjunartíma

Með fullri virðingu fyrir Alfreð Gíslasyni. Þetta er bara myndlíking.

Ef þú gætir farið aftur til janúar þessa árs til að breyta einum hlut, myndi þetta líklega ekki hvarfla að þér.. Alfreð Gíslason handboltaþjálfari talar við blaðamenn: Eftir 7 marka tapið gegn Spáni hafa sumir ýjað að því að ég ætti að víkja sem þjálfari landsliðsins. Mér þykir það fráleitt því ég fór til formanns HSÍ og sagði honumk að það væru 0% líkur á að við gætum unnið þennan leik. Ég er farsælasti handboltaþjálfari sem uppi hefur verið á Íslandi. Það er fráleitt að ætla að ráða einhvern annan í starf landsliðsþjálfara, því enginn býr yfir jafn mikilli reynslu og ég. Peking, ágúst sama ár. Leikmaður landsliðsins: Hættu! Þú ert ágætur þjálfari og allt það, en þú ert bara ekki að ná til okkar! Alfreð: Góði haltu kjafti. Ef þið hrekið mig úr þjálfarastarfinu sækist ég bara eftir að komast í hópinn sem leikmaður. Og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varð ekki uppvís að bruðli með almannafé... Bogi Ágústsson les fréttir: Íslenska handknattleikslandsliðið féll úr keppni á Ólympíuleikunum í Peking eftir fimm tapleiki í röð. Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari segir spurningar um hvort hann íhugi nú að hætta ómálefnalegar og ósmekklegar

4.12.08

1.12.08

Skrípó, 01.12.08: Vandræðaunglingurinn

Uppfært 13:02: Þar sem ég var að eignast barn núna á sunnudagsmorgun hef ég ekkert komist á vefinn síðan fyrir þann tíma. Var búinn að setja upp þetta skrípó til birtingar fyrir ykkur í dag, en þetta misfórst eitthvað í uppsetningu hjá mér eins og gengur.
Falleg ást að vori árið 2007. Geir H Haarde: Áður en þú flytur inn, ástin, þa´þarftu að vita af honum Davíð sem býr hjá mér. Lendir strax í vandamálum, þó saklaus séu í fyrstu. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir: Heyrðu, það var einhver búinn að stytta allar buxurnar mínar í morgun. Geir: Já, það hefur verið Davíð, hann á erfitt með að sætta sig við þig sem nýju mömmu sína. Aukast jafnt og þétt þegar líður á árið... Ingibjörg: Það var brotist inn hjá okkur meðan Davíð var einn heima og fjöregginu stolið. En hann hringdi ekki á lögguna! Geir: Já en þú manst kannski að hann sagði okkur í febrúar að þetta gæti gerst.. Davíð Oddsson í huganum: Craawliiiin iiiin my skiiin, thes wouunds they wiill not heeaal. Geir: Herra lögregluþjónn, ég geri mér grein fyrir að hann Davið minn hafi stolið miklum fjármunum af 320.000 manns, en hann er skilnaðarbarn og á erfitt uppdráttar í skóla. Ég bið þig því að hlífa honum. Hann er góður drengur... Ingibjörg: Sko, þetta gengur ekki, hann sagði ekki Björgvini mínum að hann hefði fengið ávísun í pósti fyrr en viku eftir að hún barst. Geir: Þetta er nú mér að kenna líka, sko. Hann sagði mér að ávísunin hefði komið en ég gleymdi að segja ykkur frá því... Ingibjörg: Minn hluti fjölskyldunnar hefur fengið nóg af Davíð. Og þú vilt ekkert taka á vandanum, kemur bara með afsakanir fyrir hann sýknt og heilagt. Þetta er bara búið. Geir: Nei æji elskan ekki láta vona. Heyrðu ég skal bara breyta afstöðu minni til að leyfa þér að beita mig Evrópusambandsfjötrum og taka mig með Evrunni ef ég fæ að halda ykkur báðum.

29.11.08

28.11.08

Slór

Spurningar og svör um gjaldeyrismál

Þar höfum við það. Hvort sem við höfum trú á Seðlabankanum og stjórn peningamála á Íslandi, þá erum við nauðbeygð til að taka stöðu með krónunni. Þó annar stjórnarflokkurinn hafi allt að því úrskurðað krónuna dauða.

Allt þetta svo yfirvöld geti logið að okkur um raunverulega stöðu krónunnar. Evran kostar 300kr, en því er logið að okkur að hún kosti 183kr.

Ég er ekki alinn upp við að fresta vandamálum. Og el ekki börnin mín upp í slíku. Ráðamenn eru að yfirfæra eigin slór-hneygingu yfir á þjóðina með lagasetningu. Þetta-reddast-lögin 2008.

Skrípó, 28.11.08

Stefna formanns Samfylkingarinnar í stuttu máli... Ingibjörg Sólrún Gísladóttir: Betri er einn fugl í hendi en tveir í skógi!

21.11.08

Geir í fýlu út í evrutal, 2007

Geir Haarde missir sig í frekjukasti þegar hann er spurður um hvort ekki þurfi að skipta út krónunni, árið 2007. Rýkur burt og reynir að banda fréttamanni frá sér, og rífst síðan við hann eins og frekjudós.

Skrípó, 21.11.08: Vergeltungswaffen

Á leynilegri rannsóknarstofu Flokksins, í borginni Peenemünde, er Foringinn að skoða nýjasta vopnið í baráttunni við bandalag ESB og krata... D-D-Davíð er ekki V-Vandamálið.. Kratarnir.. Kratarnir sviku.. Sviku jafnaðarmenn.. Tvisvar.. Ja hérna! Ég held ég hafi bara aldrei séð hann svona up close áður... Hvað segiru Igor 2.0, helduru að það sé möguleiki að endurforrita Steingrím til hollustu við mig og Flokkinn? Davíð er.. Eina leiðin.. Eina leiðin til að ég nái völdum.. Þau eru yfirleitt erfið viðfangs, þessi gömlu sovésku eintök.. En þessi hér er óvenju viljugur! Ekkert IMF. Ekkert ESB. Ekkert að Seðlabankanum.

20.11.08

Skrípó, 20.11.08

Þetta skrípó átti að birtast um síðustu helgi, en tafðist vegna kynningar á „lausn“ Icesave deilunnar. Vil vekja athygli á því að hægt er að smella á taggið „skrípó“ við færsluna til að sjá aðeins skrípófærslur.

Árni Mathiesen fékk það örðuga verkefni að hreinsa upp eftir eggjakastið.. Alhliða Verktakaþjónustan góðan dag. Blessar, Árni Matt hérna.. .Heyrðu ég þarf að fá ykkur til að þrífa Alþingishúsið.. Rífa húsið?! Hvers vegna? Tja, liggur það ekki beinast við.. svona úr því sem komið er..? Jú það má kannske færa rök fyrir því.. .. Heyrðu, ekkert mál, við reddum þessu bara.. Nei, andskotinn hafi það Árni, nú ferð þú á samskiptanámskeið!

17.11.08

Bara lygar

Nú hefur það verið gert sem lofað var að yrði ekki. Ríkið mun greiða skuldir óreiðumanna. Það sem okkur var sagt að við gætum ekki gert og lifðum ekki af, verður nú látið yfir okkur ganga. Það er á svona stundum sem lýðræðið á hvað mest undir högg að sækja.

Í lýðræðisríki myndi sá embættismaður sem gaf þjóð sinni loforð á ögurstundu verða látinn sæta ábyrgð og taka pokann sinn þegar í ljós kemur að loforðið var innistæðulaust. Í lýðræðisríki myndi sá ráðherra sem lofaði þjóð sinni að hún yrði ekki kúguð þurfa að taka pokann sinn þegar hann skrifaði undir og kyssti á vönd kvalara þjóðarinnar. Án þess að kjörnir fulltrúar okkar fengju að koma þar neitt að málum. Við sem ekki kusu stjórnarflokkanna þurfum að greiða þetta líka. Þessi samningur hefði átt að vera uppi á borðinu.

Þessi ríkisstjórn er rúin trausti, og firrir sig ábyrgð. Gjáin milli þings og þjóðar er orðin svo stór að hægt er að tala um tvær aðskildar heimsálfur. Það verður að kjósa strax.

Hvernig hefðu Bretar tekið því ef Winston Churchill hefði samið við Hitler um uppgjöf í miðju Leifturstríðinu? Og gekk það stríð nú mun meira á þrek og vilja bresku þjóðarinnar en þessi kreppa hefur gengið á okkur. Okkur var bara ekki boðið upp á neina hughreystingu eða forystu, bara lygar.

Ég vona að skrípóið létti fólki tímann og losi einhverja hnúta. Skrípóið birtist alltaf á miðnætti.

Skrípó, 17.11.08

In a non-descript building in Brussels.. Do you expect us to pay? Gordon Finally caught his enemy. Nooo mr. Haarde.. I expect you to die! We will not pay the debts of delinquents. It's like my granny used to say.. Nokkrum vikum síðar... Fólkið á eftir að brenna mig á báli fyrir þetta klúður.. Nei, blessaður vertu. Við erum búin að senda svo mörg misvísandi skilaboð að það tekur stjórnmálafræðingana þrjú ár bara að greina blaðamannafund föstudagsins. Og þá verðum við búin að skipta um stól.. Á sama tíma í myntkörfulánsíbúð í Grafarvoginum... Sjáðu, við erum enn bezt í heimi. Það eru bara íslendingar að vinna verðlaun þarna! Ha? Sagði Balti að Ólafía Hrönn væri Davíð Oddsson!? Hvað meinar maðurinn??

16.11.08

Skrípó, 16.11.08

Mikið var um mótmæli í gær, enda hafði geir haarde hvatt til þeirra á blaðamannafundi deginum áður... 1.. 2.. 3. þrjú blóm! Á meðan réði nýskipaður fjölmiðlafulltrúi ráðum sínum... Skildi Örn Árnason vera til í að taka næsta blaðamanna fund að sér? Þykist þessi skríll hafa einkarétt á því að vera reiður!? Ég er reiður líka! Afhverju er ekki pulsuvagn hérna..? Einn ræðuhaldari greindi kjarnann frá hisminu... Þegar öllu er á botninn hvolft er gott aðgengi að afþreyingu stærsta baráttumálið! Þetta lið kann ekkert að mótmæla.. Næsta laugardag lokum við öllum leiðum að miðbænum.. ..og flautum! Ég ætla að lemja löggutitt. Og hver í fjandanum ert þú!?

Ég mætti sjálfur á mótmæli dagsins. Gekk með kasólétta konuna og strákinn. Var nokkuð meiri mannfjöldi en síðast, en treysti mér ekki til að telja. Veit bara að ég treysti ekki talningu lögreglunnar. Það heyrðist lítið úr gjallhornum ræðumanna, og stráknum leiddist að standa og sjá bara rassa, þannig að við fórum rétt eftir að Hlynur Hallsson atvinnumótmælandi hóf ræðu.

Heldur hefur harnað á dalnum hjá Hlyni, en meðan hann var Alþingismaður þótti honum helsta baráttumálið hve mikið pomp væri í kringum störf þingsins. Vildi ekki mæta með bindi, og þegar forseti skikkaði hann til þess, þá mætti Hlynur með hauskúpubindi í einhverskonar mótróa stemmara.

Kannast við þetta í börnum að þegar maður segir þeim að drífa sig í buxur þá setja þau stundum buxurnar á hausinn á sér til að stinga upp í mann. Fyrrum samstarfsmenn Hlyns á þingi sjá nú hag sinn verri en áður og vilja meiri virðingu fyrir störfum þingsins. Því dó helsta baráttumál Hlyns, og hefur hann nú ákveðið að leggja okkur lið sem höfum áhyggjur af stöðu efnahagsmála.

En ég amast ekki yfir því. Býst við að það þurfi að fá alla að borðinu til þess að byggja upp nýtt land.

15.11.08

Litla hrunið

Við skutuhjú syrgðum kæra vini í gærkvöld, og fengum um leið nýja innsýn inn í heim margra eftir bankahrun.

Í Nintendo DS vél höfðu búið alter-ego okkar hjúa í leik sem heitir Animal Crossing. Í leiknum stjórnar spilandinn dýri sem af einhverjum orsökum velur að ganga á tveimur fótum. Tilgangur leiksins er að búa dýrinu fallegt heimili og rækta vinskap við nábúendur. Þegar leikurinn byrjar á maður ekki bót fyrir boruna á sér og þarf að taka veðlán fyrir húsi. Síðan þegar maður hefur borgað lánið niður fær maður nýtt, og koll af kolli þar til maður hefur eignast gríðar fallegt heimili. Dýrið þénar pening með því að veiða og selja fisk, safna ávöxtum, blómum, o.fl.

Alter-egoið mitt, nano, var kominn með hús á einni hæð auk svefnlofts með fallegum húsmunum og átti góða vini í þorpinu. Alter-ego konunnar, jellybelly, var komið heldur lengra, komin með 3ja hæða hús auk svefnlofts, mikið af húsmunum og átti mjög marga góða vini sem hún skrifaðist á við. Enda hefur konan haft nokkuð mikinn tíma til að spila í sjúkraleyfi frá vinnu vegna óléttunnar.

Svo gerðist hið óhugsandi undir náttmál í gærkvöld. Leikurinn fraus, og þegar konan endurræsti leikinn voru seivin okkar beggja horfin. Bæði húsin og allir peningarnir horfnir. Og þá er bara einn kostur í stöðunni, að byrja að spila upp á nýtt. En ég viðurkenni að manni hrýs hugur við að byrja upp á nýtt með tvær hendur tómar.

Skrípó, 15.11.08

Skyldi þó ekki vera að einkastríð nokkurra hálfvita hafi komið okkur á vonarvöl?

á fundi imf í fyrra siggi þú fokkast ekkert í krónunni minn! búðu þig undir að verða tekinn niður haha flón, helduru að ég láti þig komast upp með að hóta okkur við eigum landið, við viljum evru pffft hvað getur þú svosem gert, ég á seðlabankann og geir ég rúst ykkur við eyðileggjum krónuna þá neyðist þið til að taka upp evru og fólkið rekur þig haha þú dirfist ekki að leggjast svo lágt hæ gamli manstu eftir mér ó fokk

13.11.08

Skrípó, 13.11.08

ég skora á alla fíkniefnasala að flytja birgðirnar út og koma með gjaldeyri inn í landið. með gengi krónunnar svona lágt ætti að fást toppverð fyrir stöffið

Þetta getur að minnsta kosti ekki skaðað ímynd okkar í útlöndum..

Björgólfur í Kastljósi

Það kom ekkert út úr þessu viðtali. Var óttalegur moðreykur bara. Sigmar sýndi fínt aðhald og allt það. Reyndi að bauna á karlinn og halda honum við efnið.

Ég skil samt vel að ekkert hafi komið út úr þessu. Sigmar er sennilega, eins og ég, alinn upp í að maður láti ekki kné fylgja kviði á gamalmennum. Enda er það yfirleitt tilgangslaust og illmannlegt að brjóta niður gamalmenni. Nákvæmlega þannig kom Björgólfur út í þessu viðtali -- eins og aldraður rjómi. Alveg gáttaður á ástandinu.

Og já ég hafði samúð með kallrassgatinu. Vonandi er þetta bara hans síðasta fjármálaævintýr. Síðasti bankinn sem hann kemur á hausinn. Kannski er þarna kominn næsti formaður félags eldriborgara?

SkjárEinn sendir út stillimynd á fimmtudegi

Já þetta má vera táknrænt og allt það. Og House er einn af mínum uppáhaldsþáttum. En ég skrifa ekki undir bænaskjal skjarinn.is.

Fólk lætur eins og með því að SkjárEinn hverfi þá töpum við „fjölmiðli.“ En þó SkjárEinn hætti að senda út, þá töpum við bara afþreyingarefni. SkjárEinn leggur höfuðáherslu á góðærisefni eins og Innlit/Útlit, og hefur fyrir löngu sagt skilið við umræðuþætti hvað þá fréttir.

Skjár Einn skiptir þar af leiðandi engu máli akkúrat núna. Ekki nóg allavega til að ég berjist fyrir honum.

12.11.08

Þættinum hefur borist bréf

Gengið til lýðræðis á Akureyri

Laugardaginn 15. nóvember kl. 15:00 verður farin samstöðuganga á Akureyri vegna efnahangsástandsins í landinu frá Samkomuhúsinu inn á Ráðhústorg. Tilgangurinn með göngunni er að bæjarbúar sýni samstöðu og samhug, láti í ljós skoðun sína á ástandinu og láti rödd sína heyrast.

Talsmenn göngunnar leggja áherslu á að hér sé um óflokkspólitíska uppákomu að ræða, aðeins andsvar við því hvernig komið er fyrir íslensku samfélagi og áskorun um að hafist verði handa við að byggja upp nýtt samfélag þar sem mannauður verði í fyrirrúmi. Einnig er verið að sýna samstöðu með friðsælum mótmælum sem haldin verða á sama tíma í Reykjavík.

Forsetinn tjáir sig að venju ekki...

„Forsetinn tjáir sig að venju ekki um þær umræður sem fram fóru á fundinum.“ Þetta segir talsmaður forsetans, inntur eftir því hvað sé hæft í því að hann hafi hótað öllu illu á hádegisfundi hans með erlendum sendiherrum.

Svona fyrirslátt heyrum við trekk í trekk. Það má ekki tjá sig um efni hinna og þessa funda, bréfa, eða samtala.

Hverjir eru vinnuveitendur þessara manna? Eru það ekki við? Hefur þjóðin engan rétt til að vita hvað sagt er fyrir hennar hönd við aðrar þjóðir? Heyrir efni fundarins undir þjóðaröryggismál? Hví virtu þá hinar þjóðirnar ekki þann trúnað?

Ég er ekki Viðskiptaráðherra

„Ég er ekki Viðskiptaráðherra, ég get ekki sagt af mér sem slíkur.“ Þetta heyrðist mér Valgerður Sverrisdóttir segja í viðtali við Sindra Snæ á Stöð 2 í gær. „En ég skorast ekkert undan ábyrgð á mínum verkum sem Viðskiptaráðherra.“ Verður að viðurkennast að ég var að taka vel á í ræktinni á meðan þessu stóð, og datt næstum af hlaupabrettinu í forundran.

Hvar er virðing hennar fyrir Framsóknarflokknum? Var þessi stefna hennar og Finns eitthvað sem samræmist anda Framsóknarstefnunnar? Hvernig væri að segja af sér varaformennsku og þingstörfum svo kjósendur hafi allavega einhverja ástæðu til að snúa aftur í græna faðminn?

Ég kýs ekki Framsókn á meðan hryðjuverkamennirnir og vinir þeirra eru enn að störfum fyrir flokkinn. Svona lítill flokkur verður ekki stór aftur nema með nýju blóði og nýjum áherslum.

Segðu af þér í bara sem mestum mæli og þú getur Valgerður. Allt í lagi að þú sendir afsagnar og uppsagnarbréf vegna starfa sem þú sinnir ekki. Segðu af þér tvisvar bara til að vera viss. Verði þér eftirlaunin að góðu.

11.11.08

Bæði augun opin?

Ein færslan mín hefur fengið andmæli.

Ég átti sjálfur ekki í viðskiptum við stóru bankana 3. En þegar ég spurði þjónustufulltrúann í Sparisjóðnum mínum um sparnaðarleiðir þá benti hann mér vissulega á peningamarkaðssjóði. En sagði mér jafnframt að það væri viss markaðstengd áhætta fólgin í þeim. Hann sýndi mér kynningarbæklinga um sjóðina sem sögðu þetta sama. Úr varð að ég valdi venjulegan leiðinlegan innlánsreikning, og skipti síðan í verðtryggðan innlánsreikning þegar allt fór til fjandans.

Hvar eru kynningarbæklingar þessa fólks sem keypti sig inn í þessa sjóði? Kemur þar fram að þetta sé 100% öruggt? Hví þá ekki að leita réttar síns?

Er það sanngjarnt að skattbyrði þjóðarinnar aukist svo hægt sé að niðurgreiða tap fólks á peningamarkaði? Kom það fram í skilmálunum við þessa sjóði að þeir væru tryggðir með almannafé? Mér hefði sjálfum ekki fundist það sanngjarnt að annað fólk greiddi tapið mitt. Ekki bið ég þjóðina um að borga af bílaláninu mínu sem er í gengiskörfu. Því ég gekk inn í það helvíti með bæði augun opin.

Bless Bjarni Harðar

Nú hallar á jafnrétti þeirra Íslendinga sem skrolla -- þeir eiga sér ekki málsvara á þingi lengur.

Bjarni greyið ætlaði að leka einhverju bréfi með von um að Valgerður Sverrisdóttir sýndi sóma sinn í að segja af sér þjóð og framsókn til heilla. En Bjarni slysaðist til að senda bréfið á einhvern lista af fjölmiðlum og reyndi síðan að klóra yfir það.

Þá gerði Valgerður það að kröfu sinni að Bjarni segði af sér. Það gerði hann leiftusnöggt með miklum sóma, og sendi þar með boltann til ráðherrahópsins og Valgerðar. Það að Bjarni segi af sér og fari af þingi hlýtur að gera þrautasetu hinna bavíananna enn meira áberandi og hrópandi.

Hvað segið þið annars, Árni Mathiesen, Geir H Haarde, Valgerður Sverrisdóttir, Björgvin G Sigurðsson, Guðni Ágústsson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Birgir Ármannsson, og Össur Skarphéðinsson?

Hafið þér enga sómatilfinningu?

10.11.08

Skítapakk

Merkilegur hroki í Geir. Að vera með bíuna upp yfir eyru en samt keikur. Eins og ekkert verði gert hér á landi nema á hans forsendum. Engar kosningar.

Og ekkert að upplýsingaflæði ríkisstjórnarinnar, fólk verður bara að bera sig eftir þeim! Engin sérstök ástæða í þessu árferði eða öðru að ríkisstjórnin eyði dýrmætum tíma sínum í að setja þjóðina inn í verkefnin eða virkja hana neitt sérstaklega. Við erum bara irriterandi krakkaskítar sem röfla í aftursætinu alla leiðina, 24 tíma á dag.

Ég er viss um að Geir er heima að hlusta á Skítapakk með Dr. Spock og hrópar JÁ.

Þegar að ég kom heim í morgun þá var allt í rugli
Brotinn sófi og sköllóttur kall að rífa kjaft
Ég þoli þetta ekki - það er sama hvert ég kem
Þau láta mig ekki í friði - helvítis pakk

Andskotans pakk....
Skítapakk

Ég ætlaði bara að - slaka á og ég
ég ætlaði bara að - fá mér blund
Ónei það er alltaf sama gamla sagan
Hvar sem ég kem - hvert sem ég fer
Það lætur mig ekki í friði

Þetta helvítis pakk það amast við öllu sem maður gerir
Maður er stoppaður útá götu ef maður fer út að grilla þá kemur einhver að rífa kjaft
Ég fór í sund um daginn og það var einhver kelling að væla yfir því að ég væri í asnalegri sundskýlu
Hvað á þetta að þýða!? Helvítis pakk!

Andskotans pakk...
Skítapakk

Skítapakk - frekjupakk - skítapakk - tískupakk - sveitapakk - skítapakk - ufsapakk - skítapakk - frekjupakk - skítapakk - listapakk - skítapakk - helvspakk - tískupakk - ufsapakk - skítapakk!


Inga Jóna: Takk fyrir að lána okkur hann Geir. En þú mátt fá hann aftur núna.

7.11.08

Geir Há

Geir er maðurinn í brúnni. Hann getur ekki skorast undan ábyrgð. Á árinu hefur hann verið viðskotaillur og lítt gefinn fyrir samtöl við þjóðina. Hann fékk skýrslu eftir skýrslu um slæma stöðu bankana og kaus að berjast við skýrsluhöfunda fremur en að verja þjóð og banka. Hann var í bestu stöðu allra landsmanna til að fá upplýsingar, samt virtist hrunið ekki koma neinum öðrum jafn illþyrmilega á óvart.

Í hruninu brást hann dag eftir dag í sínu hlutverki að greina vandann og upplýsa þjóð sína. Hann lét erlenda miðla skúbba innlenda með ummælum sínum, hélt hlífiskildi yfir Davíð, sagði að hann hefði ekki breytt lögum um fjármálafyrirtæki því þá hefði „heyrst hljóð úr horni“.

Hann lætur allt sem gerist vera leyndó og furðar sig á því að upplýsingum „leki“, lýgur um efni funda, hefur ekki stjórn á eigin húsi, og kemur illa fyrir í allflesta staði. Og er hér bara fátt eitt talið.

Hann hefur ekki leiðtogagenið, svo einfalt er það. Hann fékk samt prik í gær fyrir að segja að fremur hætti hann við lán frá IMF en að gangast við ofurkostum varðandi Icesave. Við verðum alltaf að gefa mönnum prik þegar þeir reyna af veikum mætti að vera leiðtogar.

Til stjórnar Lífeyrissjóðs Verslunarmanna og stjórnar Verslunarmannafélags Reykjavíkur.

Komið þið sæl.

Ég setti mig í samband við ágætt þjónustuver ykkar í dag. Fyrirspurn mín var hvort ég gæti flutt lífeyrisréttindi mín frá Lífeyrissjóði Verslunarmanna til Söfnunarsjóðs Lífeyrisréttinda sem ég greiði nú í. Því miður er ekki gert ráð fyrir slíkum tilfærslum. Því skrifa ég ykkur þetta bréf.

Tilefni vangaveltna minna varðandi lífeyrissjóðsréttindi mín eru tvö atvik. Annarsvegar sú siðblinda sem Gunnar Páll Pálsson formaður sjóðsins hefur sýnt í starfi sínu sem fulltrúi lífeyrissjóðsins í stjórn hlutafélagsins Kaupþings sáluga. Hvað ég vísa þar í ætti öllum læsum og heyrandi að vera ljóst.

Hitt atvikið sem vakti með mér reiði var svo þegar stjórn VR ákvað að lýsa umsvifalaust yfir stuðningi við Gunnar. Hvar í lögum um félagastjórnir stendur að verkefni meðstjórnenda sé að verja formann?

Ykkar verkefni er að verja og starfa fyrir sjóðsfélaga. Hafið skömm fyrir. Það hryggir mig mjög að geta ekki sýnt vanþóknun mína á störfum ykkar með áhrifameiri hætti en þessu litla bréfkorni. Það er einlæg ábending mín til ykkar að þið verjið ímynd sjóðsins og VR með því að segja af ykkur og hleypa nýju fólki að. Lágmarksviðbrögð eru að formaður hverfi til annarra starfa utan sjóðsins og félagsins.

Allt þetta kom mér mjög á óvart því ég hitti Gunnar Pál á morgunverðarfundi í fundasal VR fyrir 3-4 árum þar sem hann ræddi kjaramál. Á þeim fundi bar hann af sér mikinn þokka og virtist nokkuð greindur.

Kveðja,
Henrý Þór Baldursson

6.11.08

Ókeypis sjónvarp eða lýðræði?

Núna eru 28039 skráðir á undirskriftarlista skjarinn.is. 3717 eru skráðir á kjosa.is.

Það að 8 sinnum fleiri hafi skráð sig á skjarinn.is en hafi skráð sig á kjosa.is er hneysa.

Vill fólk ókeypis sjónvarpsstöð og Innlit Útlit umfram starfhæft Alþingi?!

Enn sigrar frekjukynslóðin

Nú berast fregnir af því að ríkisstjórnin hafi notað 200 milljarða af almannafé til að yfirborga bréf peningamarkaðssjóða. Þetta þýðir meðal annars að frekjukynslóðinni er bjargað aftur.

Kynslóðin sem fékk húsin sín ókeypis í óðaverðbólgu. Kynslóðin sem fékk námslán og bílalán sem brunnu upp. Kynslóðin sem seldi húsin sem þau fengu ókeypis á yfirverði þegar húsnæðismarkaðsbólan var sem stærst. Kynslóðin sem átti peninga og sakaði yngra fólk um að kunna ekki að leggja fyrir.

Er þessi kynslóð ekki búin að leggja nóg á samfélagið? Kjosa.is.

5.11.08

Afnám eftirlaunafrumvarps

Siv Friðleifsdóttir og fleiri þingmenn undrast að Samfylkingin hafi ekki staðið við loforð um að afnema eftirlaunafrumvarpið.

En hvernig geta þingmenn sett út á þetta, þó þeir séu í stjórnarandstöðu? Ekkert frumvarp um slíkt afnám hefur verið lagt fyrir Alþingi. Afhverju geta þingmenn ekki bara tekið málin í sínar hendur og klárað þau, skrifað frumvarpsdrög og mælt fyrir þeim á Alþingi. Til þess er þingið, er það ekki?

Hefði verið mun sterkara að leggja þetta til og benda á þá sem ekki vilja styðja afnám eftirlauna. Mun skynsamara en að reyna að benda á þá sem ekki hafa lagt þetta til á Alþingi, því allt þingið er sekt í þessu máli.

Það er alltof mikill slugsaraháttur á þessum þingmönnum okkar.

Með eða móti?

Þetta er frekar fyndið. Í umræðum um blóraböggla virðist fólk þurfa að hafa einhvern einn sem það er á móti, og einn til að verja.

Vinsælasta parið til að vera með/móti eru Davíð Oddsson og Ólafur Ragnar Grímsson. Báðir hópar nota svipuð rök gegn/með sínum mönnum.

Ég stend ekki með neinum, nema almenningi. Ég vil að þeir báðir axli ábyrgð á sínum mistökum og setjist í helgan stein sem fyrst. Kannski óþarfi að kosta til forsetakosninga strax, þannig að ÓRG má klára sitt kjörtímabil, en sjá sóma sinn í að þegja á meðan.

Aðrir sem mega gjarnan missa sín að mínu mati eru Jón Sigurðsson, Árni Mathiesen, Geir H Haarde, Valgerður Sverrisdóttir, Björgvin G Sigurðsson, Guðni Ágústsson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Birgir Ármannsson, Össur Skarphéðinsson.

Reyndar bara sem flestir af þessum atvinnustjórnmálamönnum. Að mínu mati ættu stjórnmál að vera mun ódýrari fyrir ríkið. Enga aðstoðarmenn, meðallaun nýútskrifaðs háskólafólks, og engar risnur eða þóknun fyrir nefndarstörf. Ég vil hugsjónafólk.

4.11.08

Atið

Flestir fullorðnir einstaklingar á Íslandi er að upplifa sig í miklu ati. Þar á meðal ég. Það streyma inn fréttir af spillingu og klúðri, svo mikil holskefla af efni að fjölmiðlar hafa ekki undan að rannsaka og birta allt, og eru nærri viku á eftir blogginu. Vefmælingar sýna þjóðarmet í lestri á fréttum og bloggi.

En svo verður þetta svo mikið af fregnum af baktjaldamakki, lygum ráðherra og embættismanna, embættisafglöpum, o.fl. að fólk verður dofið. Hefur sig varla í að hneykslast lengur. Hneykslunarferlið er orðið fólki svo kunnugt að það á engin orð eftir. Dæsir bara, grúfir nefið ofan í kaffibollann og segir „jæja.. svo kvennalandsliðið er á leið á mót, eða eitthvað, er það ekki, hmm?“

En það er kjarni að myndast. Kjarni af fólki sem hefur tapað starfi, eignum, von, og jafnvel sjálfsvirðingu út af aðgerðum annarra. Og brotamönnunum er verið að bjarga frá gjaldþroti með baktjaldamakki. Þessir einstaklingar fá ekki nóg af atinu. Þeir gætu hrundið af stað byltingu.

3.11.08

Slugs

Þessi orðrómur, sem ég vísa í í síðustu færslu, er búinn að vera í gangi í amk. 5 daga núna, og það er hreint ótrúlegt að ekki hafi verið farið í saumana á þessu strax í fjölmiðlum. Nú eða þá Alþingi.

Meiri slugsararnir í þessum blessaða fréttageira og þingheimi. Þarf einhver að taka þá í kúrs í því hvernig venjulegir launamenn fá verkefni og ganga í þau, eða finna sér verkefni og klára þau.

Mér er spurn hvort við þurfum að vera með alla þessa þingmenn á launum?

31.10.08

Bankamaður er jafnari en venjulegur maður

Eitt stærsta spillingarmálið tengt nýju bönkunum í dag er hvernig verið er að bjarga bankastarfsmönnum undan lánaskuldbindingum sínum. Þetta lesendabréf birtist á vef Egils Helgasonar í gær, 30. október:
Frá bankamanni

Smá saga af því sem er að gerast innan bankanna þriggja núna - staðfest frá fyrstu hendi þar sem ég er einn af þeim sem þetta á við. Finnst siðferðisleg skylda mín að láta vita af þessu.

Mikill fjöldi starfsmanna hefur keypt hlutabréf gegn láni (og þá helst erlendu) á undanförnum árum og jafnvel stuttu fyrir hrunið. Innan bankanna er unnið að því hörðum höndum að leysa úr þessari flækju og losa fólk undan þessari skuldbindingu - ástæðan er m.a. sú að starfsmenn sem tapa öllu og verða gjaldþrota mega ekki vinna hjá bankanum.

Hvaða sanngirni er þetta - ef losa á ákveðinn hóp undan skuldbindingum, afhverju á það ekki við alla. Þetta þarf að fá á hreint frá Björgvini G., formönnum skilanefnda og/eða núverandi bankastjórum.

Annað að fjölmargir framkvæmdastjórar seldu eitthvað að bréfum vikuna fyrir hrunið - FME hlýtur að rannsaka það og bakfæra slík viðskipti, við treystum þeim til þess (eða ekki!).


Sagan segir að verið sé að stofna eignalaus einkahlutafélög í eigu bankastarfsmannanna sem fá að taka lánin yfir án þess að búa yfir nokkru veði. Þessi einkahlutafélög geta síðan farið í gjaldþrot án þess að hafa áhrif á kennitölu bankastarfsmannsins. Sem þýðir að óreiðumenn geta unnið í bönkum áfram. Þetta er eitthvað sem hinn almenni launamaður á ekki kost á að gera.

Þetta þarf að birtast á sem flestum stöðum. Ótrúlegt að ekkert heyrist af þessu á Alþingi eða í fjölmiðlum.

30.10.08

Innsæi Ólafs Ragnars

Fyrir 20 árum benti Ólafur Ragnar, nú forseti, á að verðbréfasjóðir Ávöxtun sf. gætu ekki staðið undir skuldbindingum sínum. Orð hans um þessi málefni urðu til þess að sjóðseigendur innleystu fé í unnvörpum og fyrirtækið fór á hausinn. Þá kom í ljós að hluti sjóðsfé hefði verið notað á óeðlilegan hátt, og skuldaði Ávöxtun sf. sjóðnum 68 milljónir. Stjórnendur Ávöxtunar sf. sátu inni á Kvíabryggju í kjölfarið. Einnig fór fram rannsókn á því hvort eftirlitshlutverk bankaeftirlits Seðlabankans og Viðskiptaráðuneytis hefði brugðist. Bankaeftirlitið bar fyrir sig að „allt í einu“ hefðu frjáls viðskipti með verðbréf hafist og þeir ekki haft ráðrúm til að sinna sínu lögboðna eftirliti.

Málið með Ávöxtun var svipað bankahruninu, bara mun smærra í sniðum. Í tilfelli bankahruns var enginn Ólafur Ragnar á þingi, hann var upptekinn við að sinna kynningarstarfsemi fyrir bankana á erlendri grundu. Var „viðskiptaundrið“ of nákomið Ólafi Ragnari í þetta sinn?

29.10.08

Evra eða neðra

Það virðist ljóst að við komumst ekkert áfram nema í slagtogi við ESB og í myntbandalagi þeirra. Einhverjar ræður um samnorræna mynt er ekkert nema draumur sem ólíklegt er að verði að veruleika.

Ég hef búið við Evru í Frakklandi, og á marga vini sem gera það enn. Með laun í Evrum og lán í Evrum. Þeim buðust lán í Jenum, en sáu ekki ástæðu til að taka þau, þar sem seðlabankinn þeirra var ekki með ~15% stýrivexti eins og staðan var hér. Þessir menn eru ekki með hjartað í brókunum upp á hvern dag, þótt vissulega eigi einhverjir bankar í vandræðum í þeirra landi.

Maður fékk óverðtryggð lán á rúmlega 4% hjá bankanum sínum en kringum 6% hjá öðrum lánastofnunum. Munurinn var líka sá að bankinn vann eftir einhverju regluverki. Þannig þó að ég væri með 3500evrur útborgað á mánuði var bankinn tvístígandi í að ég skuldsetti mig fyrir bíl með afborgunum upp á 600evrur á mánuði. Þeir settust niður með mér og útskýrðu að ég yrði að lifa líka. Þrátt fyrir að ég lifði hvorki við gengis- né verðbólguáhættu.

Þegar ég lenti í greiðsluerfiðleikum út af tímabundnum tekjumissi í einn mánuð, þá sá franski bankinn til þess að ég hefði rétt á milli hnífs og skeiðar á meðan greiddist úr afborgunum, með fyrirframgreiddu greiðslukorti.

Þetta lærði ég því af þeim, að þegar ég lenti í að skulda hellings pening sem ég þurfti að borga einn mánuðinn hér á Íslandi (~120þús), þá kaus ég frekar að borga alla summuna af launareikningnum og taka á mig 1-2 magra mánuði frekar heldur en að taka yfirdrátt á 25% vöxtum eins og íslenski bankinn ráðlagði mér.

28.10.08

Svo bregðast krosstré..

Þar sem ekki er efnt til almennilegra mótmæla lengur, þá neyðist ég til að taka þátt í mótmælum á netinu: www.kjosa.is.

Að fallast hendur

Manni fallast hreinlega hendur í þessu ástandi.

Hér ríkir alger glundroði og upplýsingaskortur ofan á hann. Það er engum að treysta í þessu og enginn stendur upp úr sem trúverðugur leiðtogi sem hefur yfir að búa getu til að koma okkur í gegnum þetta. Eini aðilinn að málinu sem maður getur tekið stöðu með er almenningur.

Ef við reynum að mótmæla, þá þurfum við að sitja uppi með afdala stjórnmálahunda og börn þeirra, eða þá kommúnista og listaspírur sem nota tækifærið og tala um fall kapítalismans og upprisu sósíalismans. Nei takk, ég bý þegar við sósíalisma síðan í byrjun október.

Ég var í sjokki, varð reiður, en nú er ég fullur vonleysi. Því mér sýnist enginn geta aðstoðað almenning eða talað fyrir okkar hönd. Ég er ekki á þeim stað í lífinu þar sem ég er tilbúinn í að taka þátt í ofbeldisfullri byltingu. Það þarf ekki veðurfræðing til að segja manni hvert vindurinn blæs.

Krónan á flot aftur

Nú eru viðskipti hafin aftur með krónuna. Stýrivextir hækkaðir til að fjárfestar sjái sér hag í að taka stöðu með krónunni. En það verður líklega ekki. Hver hefur trú á krónunni eða gjaldeyrisstefnu sem gæti breyst jafn harðan og festing gengisins á dögunum.

Nú bíður maður með krosslagða putta og vonar gegn vitund að krónan fari ekki í frjálst fall aftur.

27.10.08

Lygar

Björgólfur Thor er nú hársbreidd frá því að sanna lygar á Seðlabanka Íslands.

Hvernig hefði annars Seðlabanki Íslands geta réttlætt að lána ekki gjaldeyri sem Landsbankinn ætlaði að nota sem tryggingu við að koma Icesave hraðbyri í breskt dótturfélag. Gegn fimmföldu veði? Hvernig er hægt að neita slíkri umsókn?

Í staðinn þurfum við örugglega að taka þetta á okkur, ef marka má afdráttarlaust loforð Björgvins G Sigurðssonar til Alistair Darling 5. október.

Var kannski bara búið að ákveða að bankarnir yrðu teknir? Búið að finna nýja gullkálfa?

Nú verða erlendir rannsóknaraðilar að fara að drífa sig í landið, þessar spurningar mega ekki hanga yfir okkur lengi.

Samningsstaða

Hvaða samningsstöðu hefur íslenska ríkið við Breta þegar breska fjármálaráðuneytið getur vísað í bréf frá íslenska viðskiptaráðuneytinu þar sem því er afdráttarlaust lofað að innistæðusjóður standi á bakvið Icesave reikningana bresku?

Spennandi verður að sjá hvernig Samfylkingunni tekst að klína þessu bréfi á Davíð Oddsson.

National Bank of Iceland

Jæja, Landsbankamenn hinir nýju hafa séð að það var vonlaust að ætla að eiga viðskipti út á nafn bankans. Hann heitir nú NBI, sem líklega stendur fyrir National Bank of Iceland.

Gamalt og gott nafn frá árinu 1885 eyðilagt á 5-6 árum af glannaskap.

26.10.08

Davíð burt(?)

Eins einfalt og það er nú fyrir fólk að skrá stuðning sinn við eitthvað bænaskjal á netinu, þá hefur áskorunin þess efnis að Davíð Oddsson segi af sér bara hlotið rúmlega 2800 undirskriftir.

Það er langt undir 1% þjóðarinnar. Enda er það nú frekar ódýr lausn. Hvar er ákallið um að Geir Haarde segi af sér, Árni Mathiesen, eða Jón Sigurðsson formaður FME? Nú eða ákallið um að Björgvin G axli ábyrgð á launum bankastjóra sem hann hefur sjálfur hneykslast á?

Einstaklega einfeldningslegt að biðja bara um að Davíð fari á eftirlaun og restin lagist af sjálfri sér. Aðeins lítill hluti hinna 2800 hafði síðan nennu til að mæta fyrir utan ráðherra bústaðinn og tigna Jón Baldvin Hannibalsson, brenna fána og hrópa Davíð burt. Jón Baldvin, það var þá líka boðberi nýrra tíma í pólitík!

25.10.08

Súr mótmæli

Arkaði snjó með kasólétta konuna og drenginn gegnum hríðarbyl í dag áleiðis niður í miðbæ.

Þegar þangað var komið voru um 30 kommar þarna með rauðan fána með 3 fíflum á, og boðuðu byltingu fíflanna.

Ef einhver kemur með tillögu að raunhæfum mótmælum þá skal ég mæta, en ég sit ekki undir því að hlusta á Hlyn Hallsson tala um upprisu sósjalismans í annað sinn. Enda er það bara enn eitt kerfið sem brást, tók ekki fyrir mannlega þáttinn. Rétt eins og kapítalisminn.

24.10.08

Landsbankinn Securities

Þvert á vilja íslenskra stjórnvalda hefur KPMG samið, fyrir hönd breskra stjórnvalda, um kaup Straums Burðaráss á eignum Landsbankinn Securities í Bretlandi. Þannig kaupa gömlu eigendur rjómann af eignasafninu og halda hrunadansi sínum áfram.

Niðurlægingarnar koma í drífum núna.

Mótmæli, bara gegn Davíð?

Ég er vel til í að mótmæla á morgun. Sérstaklega í hríðarbyl og vofveiflegu veðri -- það er bara viðeigandi. En ef mótmælin snúast bara um persónu Davíðs Oddssonar, þá nenni ég ekki að mæta. Vil ekki standa við svo þrönga afstöðu. Finnst það einum of ódýrt að skella skuldinni á hann einan. Hann segist hafa sannanir fyrir því að hafa reynt að fá bankana til að draga úr áhættusækni sinni, með tilmælum, sem þeir hunsuðu. Hann þarf að fá að sanna það.

Björgvin G Sigurðsson sagði á bloggi sínu ekki fyrir allslöngu að einkavæðing bankanna hafi verið vel heppnuð og löngu tímabær, því bloggi hefur hann lokað. En nú segir Samfylkingin að Davíð þurfi að víkja m.a. vegna framkvæmdar einkavæðingarinnar.

Gott dæmi um það er fjármálaþjónustan. Aðeins fimm árum eftir að einkavæðingu íslensku ríkisbankanna lauk hefur útrás og velgengi þessarar fyrirtækja verið með ólíkindum. Bankarnir eru orðnir megin fyrirtækin í okkar samfélagi sem skaffa þúsundum góð og vel launuð störf. Og þjóðarbúinu um 10% tekna sinna. Frábær árangur og dæmi um þá krafta sem leystir voru úr læðingi með löngu tímabærri einkavæðingu. Lesa meira


Lokapunkturinn er síðan Alþjóða Gjaldeyrissjóðurinn sem vill nokkurnveginn sömu peningamálastefnuna áfram.

Ég hef aldrei verið sérstakur aðdáandi Davíðs, en mig svíður það ef fólk ætlar að eyða tíma sínum og orku í að berjast gegn honum að ástæðulausu. Hvað er annars eftir fyrir andstæðinga hans að japla á?
--- --- ---
Uppfært 11:40:
Ágætur Dr. Gunni svaraði tölvupósti mínum varðandi þessi mótmæli, þó hann sé ekki lengur í forsvari fyrir þau.

Yfirskriftin er núna „Krafan er einföld og þverpólitísk, rjúfum þögn ráðamanna!“

Þannig að kallinn mætir, með útþanda ladsa. Sjá hér.

Björgvin Gjé

Það er sjálfsagt hægt að segja margt, en best að bíða eftir niðurstöðu erlendrar rannsóknar um áramótin.

Eitt er þó ótvírætt, maðurinn er gasprari. Það sést á bloggfærslunum sem hann reyndi, klaufskt, að fela. Björgvin punktur is lifir enn í minni netsins.

23.10.08

Kastljósið tekur fram úr

Kastljósið er að taka fram úr öðrum fjölmiðlum í umfjöllum. Viðtalið við Geir Haarde í gær, og umfjöllun um samtal Árna Mathiesen og Alistair darling í kvöld voru fyrsta flokks. Vonandi að þeir nái að fletta ofan af atvikunum áður en við verðum öll skuldsett vegna þeirra. Við getum ekki greitt fyrir glæp annarra, hvað þá án þess að vita staðreyndir glæpsins. Við verðum að vita hvað fór á milli Darling og Björgvins G Sigurðssonar.

Verst að Jóhanna Vilhjálmsdóttir er ekki mjög sterk í viðtölum, eins og viðmælandi kvöldsins, Jón Daníelsson, var áhugaverður. Megnið af viðtalstímanum eyddist upp í moði og samantektum Jóhönnu.

Kastljós, 23. október, 2008

Loksins, loksins

Frétta- og fjölmiðlafólk hefur stóreflst í aðgangshörku sinni og í að skera gegnum spunann og koma að kjarna málsins.

Þetta sést á viðtali Sigmars Guðmundssonar í gær, viðtali Egils Helgasonar við Jón Ásgeir Jóhannesson, og svo núna í viðtali Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur við Birgi Ármannsson formann allsherjarnefndar.

Meira svona, takk.

20þús íslenskar undirskriftir..

Geri athugasemd við þessar 20þús undirskriftir.

Alltof ódýrt að leggja vínarbrauðið frá sér í pásunni, músa sig inn á indefence.is, og pikka inn nafnið sitt með annarri meðan heitur javavökvinn rennur niður úr hinni. Pikka síðan inn einhver önnur nöfn sem maður man eftir, svissa um hendi, bíta í vínarbrauðið og slá inn nokkur bullnöfn líka. Því hver les svona lista, bara að hafa sem flesta!

The revolution will not be televised. Og að sama skapi verða aldrei alvöru mótmæli á netinu.
--
Uppfært 16:27:
Nú eru komnar 34.760 undirskriftir. Hver trúir þessu rugli? Ég myndi vilja fá tölur þeirra sem halda síðunni úti hversu margir vafrar margar einkvæmar heimsóknir þessi vefur hefur fengið. Sé að þeir eru að nota Google Analytics.

Krúttin

Ég held að krúttin muni umbreytast í Æþegiðikynslóðina.

Mjög þjökuð af neikvæðni eldri stétta (síbyljukynslóðarinnar), mun æþegiðikynslóðin klippa á svarta vírinn, en halda þeim rauða. (Halda jákvæða pólnum.)

Ef eldra fólk, sem ætti að þekkja söguna betur en krúttin, væri ekki að missa sig í bölsýni, þá myndi fólk kannski sjá glóð í myrkrinu. Að fólk hefur nú komist í gegnum verra mótlæti en þetta.

22.10.08

Nýtt lyf gegn vonleysi og reiði

Kastljós, 22. október, 2008

Rólegheitamúsík

Rúmt ár síðan ég smellti þessum performans Gabors Szabo á netið. Algjör perla.



Meint heimska krúttkynslóðarinnar

Þeir eru einhverjir sem vilja dangla aðeins í kynslóð krúttanna nú á þessum síðustu og verstu tímum.  Hreyta í þau vegna efnahagshrunsins, og spyrja hvernig þau haldi að hægt sé að stunda einhverja skýjaborga hátækni nú þegar allt er að fara til fjandans. Og slá Andra Snæ Magnason utanundir fyrir vitleysuna að baki Draumalandsins. Stóriðja áfram, ekkert stopp!

Það er þó vert að minnast á það, að í hinum miklu efnahagsþrengingum sem Bandaríkin gengu í gegnum á 8. áratug síðustu aldar, þá voru einhver þálifandi krútt sem töldu að tölvum væri ekki bara ætlað að verða hraðreiknar fyrir stórar stofnanir. Fólk myndi koma til með að vilja einkatölvur á hvert heimili.

Þetta voru meðal annars Microsoft og Apple Inc. Microsoft halar inn óhugsanlegum tekjum inn í bandaríska hagkerfið og stofnendur þess eru ríkustu menn vesturlanda.

Eitt rótgróið stórfyrirtæki, Xerox, átti á þessum tíma hugvitsfólk sem fann upp gluggaumhverfi ákynja því sem við notum í dag, ásamt músinni. Stjórnendum fyrirtækisins fannst þetta svo arfavitlaus hugmynd að þeir seldu Microsoft og Apple Inc. aðgang að þessum uppfinningum og verkfræðingum þeirra. Og það á brunaútsölu.

Nýsköpunarhugmynd

Ég er með arðbæra hugmynd. Hún gengur út á að frysta fósturvísa þeirra sem vilja tryggja sér niðjar, en hafa ekki áhuga á að láta börnin sín borga fyrir óreiðumenn fortíðarinnar.

Þjónustan byggir á að leigumæður muni ala fósturvísana þegar ríkissjóður er aftur orðinn skuldlaus og séð verði fyrir þeim á allan hátt.

Verð: 1 milljarður króna per fósturvísi, 20% systkinaafsláttur.

Gerum bankana vinalegri

Hér er hugmynd. Afhverju ekki að skipta bara alveg um nöfn? Nöfn bankanna eru hvort eð er ónýt. Nefnd í sömu andrá og Al Qaida. Það er slæm vörumerkistenging.

Afhverju ekki bara að kalla Glitni „Birnubanka“, Landsbankann „Elínarbanka“, og Kaupþing „Finnsbanka“? Miklu vinalegra!

Þegar þetta er svo búið, þá getum við notað nafnið Thüle. Það er enginn smeykur við að eiga viðskipti við Thüle.

Nema Filip Grín vilji kaupa okkur á 95% afslætti. Grínland?

21.10.08

Kapítalisminn lifir!

Hannes Hólmsteinn, vitnar í hugmyndafræði Locke frá 17. öld, gjörsamlega úr öllum tengslum við raunveruleikann.

Segir að kapítalisminn hafi ekki og muni ekki deyja. Hrunið sé ekki kapítalismanum að kenna, heldur kapítalistum.

Þetta er svona eins og ef verkfræðingarnir á bakvið Titanic hefðu staðið á dekkinu á Carpathia 15. apríl 1912 og reynt að sannfæra fólkið sem bjargaðist um að hönnun Titanic kæmi í veg fyrir að hún gæti sokkið, skipstjórinn hefði bara verið fáviti.

Hann virðist ekki gera sér grein fyrir að allt þetta sama mátti segja, og var sagt, um kommúnismann.

Ríkasti krakkinn í bekknum

Ríkasti krakkinn í bekknum var ríkastur því hann fékk mikinn pening frá fjölskyldu sinni. Fjölskyldan er mjög stór og fjölskyldumeðlimir í mörgum heimsálfum.

Krakkinn barst á og montaði sig við bekkjarfélagana. Mætti í teinóttum fötum og með flottasta dót sem aðeins hafði sést í sérstökum lúxusþáttum í sjónvarpi, gerði grín að hinum krökkunum fyrir að vera fátæk, og bauðst til að lána þeim nammi og smáaura af góðvild sinni einni saman.

En á meðan var fjölskyldudrama í gangi. Heimskasti frændinn, olíumaður í Bandaríkjunum, fór á hausinn eftir að hafa lánað öreigum margra milljarða lán til húsnæðiskaupa. Það hrikti í stoðum familíunnar og hún hætti að lána hvoru öðru fé. Fjölskyldan hafði haldið bókhald yfir allan peninginn sem krakkinn fékk, og öllum að óvörum sendi hún litla frænda bréf þar sem tíundaðir voru allir peningarnir sem hann skuldaði, og frestur gefinn í nokkra daga til að borga.

Krakkinn flúði í ofboði til Disneylands í Flórída. Einhverra hluta vegna tóku bekkjarfélagar hans að fá reikninginn. Þeir höfðu jú fengið af og til nammi og svona, hagnast á ríkidæmi krakkans.

Krakkaskíturinn er hinsvegar hafinn upp yfir þetta allt. Og bekkjarfélagar hans kenna kennaranum og skólastjóranum um. Nokkrir vinir krakkans skrifa nefnilega í skólablaðið.

Engin upplýsingaskylda?

Enn ekkert að frétta af aðgerðum eða áætlunum ríkisstjórnarinnar.

Væri þetta hlutafélag, myndi ég sem hluthafi eiga kröfu á betri upplýsingum, og þeim upplýsingum yrði að koma til Kauphallarinnar o.s.frv.

En sem stendur vita bara nokkrir gæðingar hvað er að fara að ske hérna.

Meðan þreyta ráðamenn spretthlaup og sýna fádæma hroka í samskiptum við fjölmiðla. Hvað er nákvæmlega svona viðkvæmt við þeirra málefni, og hversvegna er ekki hægt að tala hreint út?

19.10.08

Kraftarnir sem losna

Kraftarnir sem losna við hrun útrásarinnar verða ekki virkjaðir á Íslandi. Allavega væri ég farinn ef ég ætti þess kost.

Var að spökulera hvort ég gæti farið til Frakklands og nýtt það sem ég á inni í ASSEDIC. En gjaldeyrisskömmtun og lágt gengi þýða að ég gæti mest lifað af í 2 vikur.

Svo er nýr Íslendingur, Henrýsson, væntanlegur í desember.

Hvernig segir maður „oxymoron“ á íslensku?

Í kvöldfréttatímanum sagði Geir H Haarde í sömu andrá að einskis væri að frétta, en tími ríkisstjórnarinnar væri vel nýttur.

Það er fundað í hringi.

18.10.08

Nýtt sovét, takk.

Þegar illa árar virðist öllum sama um litla Ísland, og jafnvel berja það aðeins til svona til að láta sér líða betur.

Virðist vera að við eigum ekkert sem öðrum vantar lengur. Eina sem gæti bjargað okkur er stríð milli Bandaríkjanna og Rússlands. Nýtt kalt stríð og Ísland úr NATÓ, þá gætum við haft einhverja samningsstöðu við báða aðila.

16.10.08

Frasinn

Þessi frasi, „vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði“, er svo mikið notaður að stjórnvöld hafa fundið hjá sér nauðsyn til að setja hann á lógó:

Nú fyrst reynir á geðheilsuna

Ágætur pistill á heimasíðu jafnréttisstofu.

En er fólk að fara að höndla samviskubit yfir sínum fáu hlátrum þessa dagana?

Netið blómstrar í kreppunni

Baggalútur og ýmsir bloggar eru að blómstra.

Virðist enginn nenna að lesa dagblöð lengur, enda lítið upp úr þeim að hafa annað en varnir fyrir eigendurna. Auk þess finnst manni ekki líklegt að þau lifi þetta af.

Sjónvarpsfréttirnar virðast alltíeinu orðnar of stuttar til að ná að fara yfir allt sem gerist á heilum degi, í fyrsta skipti síðan ég man eftir mér. Enda rétt tiplað á smáatriðunum að utan og í íþróttunum.

Spaugstofan er orðin relevant eftir u.þ.b. 8 mögur ár.

Kominn tími á Interpol?

Björn Bjarnason hefur falið ríkissaksóknara að rannsaka bankana.

Gott og vel, en mér þætti hinsvegar mun betra ef Interpol rannsakaði þetta. Ég treysti ekki Íslendingum til að rannsaka Íslendinga núorðið.

13.10.08

Hverjir töpuðu sparifénu á þjóðnýtingunni?

Skoðum upphaf verðtryggingar á Íslandi.

Ég var í stærðfræðitíma í byrjun framhaldsskóla þegar kennarinn fór að segja okkur frá því hvernig hann eignaðist húsið sitt. Frásögnin sat í mér.

Fólk fætt á millistríðsárum keypti húsin sín á stórum lánum. Allir þurftu að eignast hús. Mikil þensla varð, og henni fylgdi óðaverðbólga. Í kjölfarið varð launaskrið og verðgildi lánanna varð lágt gagnvart krónunni. Í stuttu máli brunni lánin upp. Þá átti fólkið tekjuafgang mánaðarlega sem það ráðstafaði í önnur lán fyrir bílum og þessháttar. Leikurinn endurtók sig: Þensla, verðbólga, launaskrið, verðlaus lán.

Þetta er fólkið sem var með löngu uppkomin börn þegar húsnæðismarkaðurinn tók kipp fyrir nokkrum árum. Þau sáu verðgildi einbýlishúsanna sinna taka risastökk mánaða á milli, og notuðu tækifærið og minnkuðu við sig. Sumir skiptu þeim upp í tvíbýli til að hagnast enn meira. Keypti litlar krúttlegar íbúðir fyrir ellina. Eftirstöðvarnar voru tugir milljóna sem fólkið setti síðan í bréf og ýmsa sjóði. Venjulegir bankavexti freistuðu ekki.

Stór hluti fólksins sem tapaði háum fjármunum í þjóðnýtingu bankanna og falli markaða er þetta fólk. Af kynslóðinni sem kaninn kallar „þöglu kynslóðina“. Hér á Íslandi hefur hún verið þekkt sem frekjukynslóðin.

Sama fólkið og segir að við í „krúttkynslóðinni“ kunnum ekki með peninga að fara og gerum óraunhæfar kröfur. Ég á erfitt með að vorkenna því þó það sé nú orðið að virðulegum gamalmennum. Það á þó ennþá íbúðirnar sínar. Nema þau sem fóru í Búseta.

Við í krúttkynslóðinni fengum ekki tækifæri til að spila á sama leikvelli. Okkar fjárhagslega framtíð verður miklu dýrari.

Nú er lag

Fjármálalífið verður að fara á allsherjar skilorð núna. Hér hafa þróast einhverjar Abu Ghraib aðstæður í viðskiptalífinu, þar sem skipuritið brást og menn höfðu of lausan tauminn.

Ríkisstjórnin verður að hætta að reka bankana eins og eign flokkanna. Ráða verður business management ráðgjafafyrirtæki sem sér um að endurskipuleggja reksturinn, kenna undirfólki góða viðskiptahætti. Minnka áhættur og gera þessa banka að hagkvæmustu og best reknu fyrirtækjum heims.

Fyrsta skrefið gæti orðið að láta endurskipuleggja FME, sem myndi síðan skipuleggja rekstur bankanna. Endurskoðendafyrirtæki myndu síðan taka þátt í útboði til að gera stikkprufur á rekstri og bókhaldi bankanna.

Með þessu fengjum við sem mestan arð af sölu bankanna. Og smám saman gætum við endurheimt orðspor Íslands. Stjórnvöldum er ekki stætt á fornum bitlingum, því nú eru augu heimsins á þeim. Ekki bara íslenskra kjósenda (guði sé lof.)

DV hefur fengið línuna

Allir helstu auðmenn landsins hafa talsmenn.

DV þetta stóryrtasta blað landsins sem marga æruna hefur svert og fáu sinni beðist afsökunar þykir Egill Helgason hafa misst niður um sig með því að krefja Jón Ásgeir svara í þætti sínum.

DV maskínan fór umsvifalaust í gang:

Egill hundskammaður fyrir Silfrið

Drottningar hrósa Agli

Reiður og ómálefnalegur

Það er dónaskapur að ráðast með stóryrðum á auðmenn, segir stóryrtasta blað landsins.

Aflandseyjar

Margir velta fyrir sér hvað aflandseyjar séu.

Þetta hugtak er notað yfir banka sem reknir eru í ríkjum þar sem skattbyrði er minni, viðskiptavinir eru varðir með bankaleynd, og lög eru rýmri.

Upphaflega var hugtakið notað fyrir eyjar Ermasundsins sem stunduðu svona viðskipti. En ekki eru allar aflandseyjar eylönd. Sum ríki meginlandsins, t.a.m. Sviss, Lúxemburg, og Andorra, falla undir skilgreiningu á aflandseyju.

Sjá útskýringu á wikipedia.

12.10.08

Einsettur bloggari grunaður um lýðskrum

Lýðskrum má þekkja á viðbrögðum manna við fréttum hvers tíma.

Þeir eru á móti og reyna að vekja upp reiði gegn ákveðnu fólki eftir því hvar þeim sýnist almenningsálitið liggja. Með öllum mögulegum leiðum:


Mestu skiptir að setja sig upp á móti sem mestu. Jafnvel þótt hlutirnir þróist og aðlagist eigin hugmyndum. Alltaf er ekkert rétt gert.

Þarf Geir að óttast sérframboð Davíðs?

Ef nota má bloggið sem hitamæli fyrir hug þjóðarinnar þá þarf Sjálfstæðisflokkurinn ekki að óttast sérframboð Davíðs Oddssonar. Ekkert frekar en þeir þurftu að óttast F-lista Sverris Hermannssonar. Þvert á móti bæri þeim að fagna því. Slíkt framboð myndi bara beina eirðarlausri reiði hægri-miðju kjósenda á ákveðinn andstæðing og þar með styrkja kjörfylgi X-D. Þetta hlýtur Davíð líka að sjá í hendi sér.

Sjálfstæðisflokkurinn mun réttilega þurfa að þola mikla skoðun og ádeilur vegna framkvæmdar einkavæðingarinnar, hagstjórnarstefnunnar, og tengslum við útrásarvíkingana. Ef Davíð Oddsson, yfireinkavæðari og seðlabankastjóri, væri í öðrum flokki, ásamt líklega Pétri H. Blöndal og Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni, myndi mest öll reiði kjósenda og ádeilur andstæðinga lenda þar.

Hinsvegar er ég ekki svo viss um að bloggið segi til um hug Sjálfstæðismanna. 200 manns í mótmælum, og þar af nokkrir sósíalistar að syngja nallann. Hljómar ekki beint eins og árgangsmót úr Verzlunarskóla Íslands. Það gæti því verið að Davíð ætti afturkvæmt.

11.10.08

Skilaboð frá 2007: Þið þurfið bara sjálfstraust og bjartsýni

Þetta var aðal viðskiptafréttin fyrir einu ári síðan, 11. október 2007.

S.O.S. 1995, Leonard Cohen, The Book of Longing (2006)

Take a long time with your anger,
sleepyhead.
Don't waste it in riots.
Don't tangle it with ideas.
The Devil won't let me speak,
will only let me hint
that you are a slave,
your misery is a deliberate policy
of those in whose thrall you suffer,
and who are sustained
by your misfortune.
The atrocities over there,
the interior paralysis over here -
Pleased with the better deal?
You are clamped down.
You are being bred for pain.
The Devil ties my tongue.
I'm speaking to you,
'friend of my scribbled life.'
You have been  conquered by those
who knew how to conquer invisibly.
The curtains move so beautifully,
lace curtains of some
sweet old intrigue:
the Devil tempting me
to turn away from alarming you.

Hey í harðindum

Er það ég eða er Spaugstofan alltíeinu orðin fyndin þetta árið, eftir að hafa varla getað fyllt upp í hálftíma af gríni síðustu ár?

Mikið er ég feginn að leigja frekar en eiga

Kemur mér sjálfum á óvart því hvernig getur verið gott að borga tugi þúsunda og eignast ekkert í staðinn. Jú, þegar upp er staðið er það vel sloppið því afborganirnar hækka ekki, og ég hefði hvort eð er ekki eignast neitt. Því ekki var bílalánið mitt stórt, en eftirstöðvarnar eru löngu orðnar hærri en nafnverð.

Get engum um kennt nema mér sjálfum. Því uþb. mánuði eftir að ég tók lánið heyrði ég viðtal við hagfræðing. Hann varaði við lánum í þessari körfu (¥ og CHF), krónan væri of hátt verðlögð.

Ég gugnaði á að skuldbreyta þar sem gjaldið var 15.000 kr og óverðtryggt lán í krónum á ca. 20% vöxtum. Nú er ég með lán sem var upphaflega 600.000kr, afborgun það sem af er 230.000, en eftirstöðvarnar 700.000kr. Mánaðarleg afborgun rúmlega tvöfaldast.

Þegar ég fer að sofa á kvöldin heyri ég nágrannana rífast um afborganir af íbúðarlánum og lánum á þessum 4 bílum sem þau eiga og sitja hér fyrir utan.

Ég er ekki bara þakklátur fyrir allt sem ég á; ég er líka þakklátur fyrir allt sem ég á ekki. Við erum eina fólkið í blokkinni sem á bara einn einkabíl!

10.10.08

Fortíðarsmellur

Datt á Singing Bee á Skjá Einum.

Þar öttu kappi Morgunblaðið og 24 stundir.

Fyrsta lagið sem ég heyrði var Vegir Liggja Til Allra Átta, einkennislag Baugur Group.

Brown og Arafat

Egill er á svipuðu róli og Jónas Kristjánsson, yljar sér við eldana, og hamast í geðshræringu. Þeir væru báðir tilbúnir í að fórna ríkinu í skiptum fyrir orðspor okkar gagnvart Bretum. Það er gunguháttur. Svona milliríkjadeilur hafa sinn farveg, sem enginn hefur sýnt fram á að íslenskir ráðamenn hafi brugðið út af.

Brown sjálfur hegðar sér eins og Arafat, talar í stríðstóni við eigin fólk en friðarnótum við okkar ráðamenn. Skilur greinilega ekki að við skiljum oft ensku betur en eigin tungumál, sérstaklega úr vörum stjórnmálamanna.

Hvað hefði verið sagt ef Bretar hefðu fryst eignir allra Sádi-Arabískra kaupsýslumanna í kjölfar 11. sept 2001?

Bloggið logar

Bloggið logar í heimtingu á rannsóknum. Sannindi, hálfsannindi, lygar, og nornaveiðar allt í bland.

Auðvitað þarf að rannsaka þetta. Það þurfa óháðir aðilar að gera, og það verður gert af háskólum og öðrum stofnunum, hérlendis sem erlendis, burtséð frá vilja stjórnvalda til sjálfsskoðunar.

Það sem er boðað á blogginu núna eru ekki góðir rannsóknarhættir, og fáum orðum fylgja þar ábyrgð.

Orðræða margra líkist frekar byltingartilraun, en áköllun á rannsókn. Sem er í besta falli grátbroslegt, því hverskonar byltingu er stjórnað af fólki í skrifborðsstólum?

Jónas og „George Brown"


Í tveimur nýlegum færslum vísar ritstjórinn fyrrverandi, Jónas Kristjánsson, í ummæli George Brown forsætisráherra Bretlands.

Ritstjórinn virðist í mikilli geðshræringu sem fylgir því að sjá höggstað á Sjálfstæðisflokknum.

George Brown barón var innanríkis- og efnahagsráðherra Bretlands á árunum 1964-1966. Tími hans í pólitík var styttur af pressu stjórnmálanna, sem jók mjög á áfengisþorsta hans.

Kannski finnur Jónas hliðstæður í sjálfum sér í Brown barón?

Tvífarar

9.10.08

„Skipta um allt settið"

Steingrím J langar inn á af bekknum og hrópar „nú ég, nú ég!"

En hvaða hugmyndir hefur hann komið með í baráttunni fyrir hagkerfinu. „Skipta um allt settið" er ekki praktísk hugmyndafræði, ef það virkar ekki á þá að skipta aftur um allt settið?

Steingrímur gat ekki tekið afstöðu til neyðarlaganna -- hann sat hjá. Sagan mun dæma hann af því. Sorglegt að mörgu leiti. Hann hafði forskot á hina með því að hafa bent á hættuna, en glataði því með pólitískum afleik. Við kjósum ekki fulltrúa til að sitja hjá.

Hvernig væri hægt að reka ríkisstjórn út á hlutleysispólitík?

Hver hefur rétt fyrir sér, útvarpið eða bloggið?

Það er mikill munur á málflutningi álitsgjafa í útvarpi og bloggi. Jafnvel reyndir fjölmiðlamenn detta í það dý að reka second-guess áróður gegn stjórnvöldum. Án þess að benda á lausnir. Nema ESB.

Þeir sem Rás 2 og Bylgjan talar við virðast á því máli að bresk stjórnvöld bregðist við íslensku krísunni með harkalegum hætti til að slá pólitískar keilur fyrir Gordon Brown og Verkamannaflokkinn. Ísland er ekki eina landið sem einblínir á afkomu sinna eigin þegna fyrst og fremst. Það gera öll lönd.

Ég er hlynntur ESB aðild. Ég hef búið í ESB ríki og notast við Evru,  og kunni því vel. En það þarf að koma hagkerfinu í gang, og opna á erlend viðskipti aftur áður en við göngum til viðræðna við ESB. Er líklegt að evrópski seðlabankinn sé æstur í að innlima okkar hagkerfi í dag?

Bankakrísan og björgun Svía  í byrjun 10. áratugar var um margt lík íslenskum veruleika í dag. Sagan hefur dæmt þá aðgerð góða að því er ég best veit.

En það má vel deila á íslensk stjórnvöld fyrir að hafa ekki séð þetta fyrir.

Fallít ritstjóri

Sést alltaf hverjir lepja allt upp eftir Jónasi Kristjánssyni. Þeim þykir orðið „fallít" svaka flott.

Gerði Davíð Oddsson ekki nokkurnveginn þá sömu hluti og Jónas gerði að kröfu sinni eftir að ríkið bauðst til að kaupa 75% í Glitni? Talaði um að kasta ekki góðu fé eftir vondu.

Ég þekki menn sem hafa lent illa úti í samskiptum sínum við Davíð Oddsson, verið reknir úr stofnunum ríkisins. Útskúfaðir og úthrópaðir.

Allajafna þætti mér ekki óþægilegt að sjá hann í skotlínunni. En svona moðreykur fer óstjórnlega í taugarnar á mér.

Er Davíð vandamálið?

Nú berjast menn á hæl og hnakka við að bjarga stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar með því að setja Davíð Oddsson af í Seðlabankanum.

En er hann vandamálið? Hann starfar í umboði þessarar ríkisstjórnar.

Menn tala um að viðtal við hann hafi orsakað ofsafengin viðbrögð Breta. En ætla menn að gefa sér að ráðherrar bresku ríkisstjórnarinnar fái þýðingu fjölmiðlamanna sinna á orðum Davíðs á borð til sín, og treysti þeirra íslenskukunnáttu án þess að hringja í kollega sína á Íslandi?

Á meðan ráðherrar ríkisstjórnarinnar voru uppteknir af að stunda leyndó framyfir að frumvarp um neyðarlögin voru kynnt, reis Davíð upp og fræddi fólk á mannamáli um það hvað væri að gerast. Burtséð frá mínum skoðunum á Davíð og ferli hans, þá virði ég þetta við hann.

Samfélagsþjónusta

Hér fyrir nokkru sáum við hluta af máli þar sem einstaklingar gátu ekki sótt sinn rétt gegn fjárglæframanni og notuðust við meintan handrukkara.

Fáir vilja sætta sig við svona siðferði, þar sem hendur skipta.

En mikil ósköp held ég að margir sparifjáreigendur væru til í að breyta væntanlegum refsidómi Bensa Ólsara yfir í samfélagsþjónustu, og gera hann út á nokkra fjárglæframenn.

Það væri Kompásþáttur í lagi.