30.12.08

Skrípó, 30.12.08: Go cry, emo kid.

Það var ekki þurrt auga á Íslandi þegar harmþrungið bréf barst frá týnda syninum sem hímdi nú klökkur með ritstafinn í íbuð sinni á Manhattan... Jón Ásgeir Jóhannesson: Þau sögðu að ég hefði sett Ísland á hausinn. ég væri óreiðumaður sem kynni ekki með peninga að fara.. snökt.. Ég tók þetta alveg hrikalega nærri mér. Statusinn hjá mér á MSN er núna bara fýlukall. Nú sit ég og stari í ljósaperuna, hlusta á Linkin Park allan daginn... Og græt.. Ó hvað ég græt sáran... Barn: Aumingja greyið maðurinn. Komið með skuldirnar hans, ég skal gangast við þeim svo Jón Ásgeir geti endurheimt lánstraustið og keypt eitthvað fallegt handa sér og sínum...

2 ummæli:

Anonymous said...

Flooooootttur. Frábært.

Anonymous said...

Djöfulsins öskrandi snilld er þetta.