16.12.08

Skrípó, 16.12.08

Spurning hvor er meira skrípó. Þessi forsíða eða sú sem mun birtast? Forsíða DV: Leiðari, Jón Trausti Reynisson, Við brugðumst ykkur, vol. 2. Hreinn Loftsson: DV er enn óháð blað. 12 síður af viðskiptafréttum. Valdar fregnir úr viðskiptalífi Íslands. Hver kom nálægt hruni Íslands? Ekki eigandi DV eða vinir hans. Þetta var alltsaman Davíð Oddssyni að kenna. Og Björgólfi Guðmundssyni. Dagblaðið Vísir, treyst af 5% þjóðarinnar, sem er alveg nóg. Reynir Traustason boðar nýja ritstjórnarstefnu: Lúffaði fyrir valdi auðmanna. Aðeins þeir sem ekki hafa efni á að verja sig þurfa að lúta ægivaldi DV.

2 ummæli:

Anonymous said...

Góður. Þú.

Henrý said...

Miðað við þetta klúður með leiðarann og endurskoðaðan leiðara á dv.is, þá myndi ég segja að ég hafi tapað þessari viðureign. DV er meira skrípó en skrípó.