24.1.09

Skrípó, 24.01.09

Var tilbúinn með skrípó um krabbameinsvald í íslenskum stjórnmálum, sem ritstjórinn (konan mín) stöðvaði birtingu á. Þið fáið vonandi að berja það augum í fyllingu tímans. Ekki viss um að fólk sé tilbúið að hlæja að þessu strax.

Annars vil ég benda á nyttlydveldi.is. Það hlýtur að vera komið að því að Alþingi verði sjálfstætt, og stjórnað af einstaklingum. Ekki flokkum.Samfylkingin er lýðræðislegt stjórnmálaafl sem stundar samræðustjórnmál. Ræðumaður: Við viljum stjórnarslit, STRAX! Og við viljum kosningar, STRAX! Klapp. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hugsar: Stjórnar.. Sliit... Kosning..ar.. Eða voru það samræðisstjórnmál..? Ingibjörg: Sko ég er ekkert sov viss um að þeir sem hafa talað hér á þessum fundi séu Samfylkingin. Eða séu þess umkomnir að koma fram fyrir hönd Samfylkingarinnar. Og ég meina.. Bara sorrí, ég er búin að lofa Sjálfstæðismönnum því að þeir megi dunda sér í sínum ráðuneytum og embættum fram að þeim kosningadegi sem þeir ákveða að sé heppilegur. Þannig að ég verð bara því miður að neyta að fylgja eftir þessum ályktunum.

4 ummæli:

Anonymous said...

Það var rétt hjá konu þinni - menn verða aðeins að fá að melta það hvernig á að taka á þessu. Annars vegar finna menn til með veiku fólki, hins vegar á ekki að leyfa veiku fólki að taka afdrifaríkar ákvarðanir. Samúð og fagleg vinnubrögð eiga stundum ekki samleið.

Anonymous said...

Það er sitthvað að neyta og neita.

Anonymous said...

Höfumm ,neita' með ,i', sbr ,NEI!'.

Henrý said...

Jamm, þetta er það skemmtilega við að blogga myndrænt. Innsláttarvillurnar lifi!