20.1.09

Skrípó, 20.01.09

Fagidjotinn Friðrik Már Baldursson heldur ræðu um ný-fræðimennsku í háskólanum í reykjavík... Friðrik: Hefðbundin fræðimennska er fyrir meðaljón. hún er alveg afskaplega næntís. Helst hægt að líkja henni við lesendagrein í DV. Hvaða meðalgreindar-moðhaus sem er getur skrifað um eitthvað út frá gögnum og staðreyndum um efnið og verið sammála kollegum sínum í grófum dráttum. Sem dæmi um ný-fræðimennsku ætla ég í dag að rimpa út heilli grein um Mars á hálftíma, án þess að vita nokkurn skapaðan hlut um Mars! Ég gef mér, ólíkt öðrum fræðimönnum, að plánetan sé vistvæn. Að á henni sé súrefni eins og á jörðinni, og mannverur úr súkkulaði með candyfloss hár.. Klapp Klapp Klapp.

4 ummæli:

Anonymous said...

Lýsandi fyrir "fræðimennsku" undanfarinna ára ;) Væri gaman að sjá framsóknarskrípó hjá þér. Guð veit að af nógu er að taka þar :)

Annars, keep up the good work.
Kv, Kolla

Henrý said...

Þau hafa verið tvö framsóknarskrípóin.

http://henrythor.blogspot.com/2008/12/skrp-201208.html
http://henrythor.blogspot.com/2008/11/skrp-221108.html

Þetta er í beinu samhengi við þörfina, þ.e. fylgi flokksins. Um 3% af skrípóinu beinist að þeim.

FS7 er félag Finns Ingólfs, og Sigurður Einarsson var innmúraður Framsóknarvoffi, svo þeir auka hlutfallið eitthvað.

Annars er ég nokkuð bjartsýnn á Nýju Framsókn, þó ég gangi ekki í flokkinn. Sigmundur Davíð er mun betri kostur en Páll Magnússon.

Anonymous said...

Varið ykkur á Sigmundi.

Pabbi hans er í S-hópnum.

Takið eftir að þrátt fyrir smölun var fylgi Páls Magnússonar mjög lítið.

Hver kaus hvern...

Anonymous said...

Það er gott að þú einn "fjölmiðla" sinnir Framsókn eftir fylgi ;) Aðrir hafa trítað fyrirbærið eins og þeir væru 30% flokkur undanfarið.

Er ekki jafn sannfærð um "nýja" Framsókn og þú en þetta verður vonandi til að aðrir feti í fótspor. Barnið er bara svo illa brennt að stjórnmálamenn verða að ávinna sér traust okkar að nýju, það er ekki gefið.

En burtséð frá pólitíkinni þá eru ræmurnar þínar hérna skrambi góðar og ég lít við á hverjum degi :)

Kv, Kolla