Showing posts with label alþingi. Show all posts
Showing posts with label alþingi. Show all posts

17.11.08

Bara lygar

Nú hefur það verið gert sem lofað var að yrði ekki. Ríkið mun greiða skuldir óreiðumanna. Það sem okkur var sagt að við gætum ekki gert og lifðum ekki af, verður nú látið yfir okkur ganga. Það er á svona stundum sem lýðræðið á hvað mest undir högg að sækja.

Í lýðræðisríki myndi sá embættismaður sem gaf þjóð sinni loforð á ögurstundu verða látinn sæta ábyrgð og taka pokann sinn þegar í ljós kemur að loforðið var innistæðulaust. Í lýðræðisríki myndi sá ráðherra sem lofaði þjóð sinni að hún yrði ekki kúguð þurfa að taka pokann sinn þegar hann skrifaði undir og kyssti á vönd kvalara þjóðarinnar. Án þess að kjörnir fulltrúar okkar fengju að koma þar neitt að málum. Við sem ekki kusu stjórnarflokkanna þurfum að greiða þetta líka. Þessi samningur hefði átt að vera uppi á borðinu.

Þessi ríkisstjórn er rúin trausti, og firrir sig ábyrgð. Gjáin milli þings og þjóðar er orðin svo stór að hægt er að tala um tvær aðskildar heimsálfur. Það verður að kjósa strax.

Hvernig hefðu Bretar tekið því ef Winston Churchill hefði samið við Hitler um uppgjöf í miðju Leifturstríðinu? Og gekk það stríð nú mun meira á þrek og vilja bresku þjóðarinnar en þessi kreppa hefur gengið á okkur. Okkur var bara ekki boðið upp á neina hughreystingu eða forystu, bara lygar.

Ég vona að skrípóið létti fólki tímann og losi einhverja hnúta. Skrípóið birtist alltaf á miðnætti.

11.11.08

Bless Bjarni Harðar

Nú hallar á jafnrétti þeirra Íslendinga sem skrolla -- þeir eiga sér ekki málsvara á þingi lengur.

Bjarni greyið ætlaði að leka einhverju bréfi með von um að Valgerður Sverrisdóttir sýndi sóma sinn í að segja af sér þjóð og framsókn til heilla. En Bjarni slysaðist til að senda bréfið á einhvern lista af fjölmiðlum og reyndi síðan að klóra yfir það.

Þá gerði Valgerður það að kröfu sinni að Bjarni segði af sér. Það gerði hann leiftusnöggt með miklum sóma, og sendi þar með boltann til ráðherrahópsins og Valgerðar. Það að Bjarni segi af sér og fari af þingi hlýtur að gera þrautasetu hinna bavíananna enn meira áberandi og hrópandi.

Hvað segið þið annars, Árni Mathiesen, Geir H Haarde, Valgerður Sverrisdóttir, Björgvin G Sigurðsson, Guðni Ágústsson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Birgir Ármannsson, og Össur Skarphéðinsson?

Hafið þér enga sómatilfinningu?

5.11.08

Afnám eftirlaunafrumvarps

Siv Friðleifsdóttir og fleiri þingmenn undrast að Samfylkingin hafi ekki staðið við loforð um að afnema eftirlaunafrumvarpið.

En hvernig geta þingmenn sett út á þetta, þó þeir séu í stjórnarandstöðu? Ekkert frumvarp um slíkt afnám hefur verið lagt fyrir Alþingi. Afhverju geta þingmenn ekki bara tekið málin í sínar hendur og klárað þau, skrifað frumvarpsdrög og mælt fyrir þeim á Alþingi. Til þess er þingið, er það ekki?

Hefði verið mun sterkara að leggja þetta til og benda á þá sem ekki vilja styðja afnám eftirlauna. Mun skynsamara en að reyna að benda á þá sem ekki hafa lagt þetta til á Alþingi, því allt þingið er sekt í þessu máli.

Það er alltof mikill slugsaraháttur á þessum þingmönnum okkar.

Með eða móti?

Þetta er frekar fyndið. Í umræðum um blóraböggla virðist fólk þurfa að hafa einhvern einn sem það er á móti, og einn til að verja.

Vinsælasta parið til að vera með/móti eru Davíð Oddsson og Ólafur Ragnar Grímsson. Báðir hópar nota svipuð rök gegn/með sínum mönnum.

Ég stend ekki með neinum, nema almenningi. Ég vil að þeir báðir axli ábyrgð á sínum mistökum og setjist í helgan stein sem fyrst. Kannski óþarfi að kosta til forsetakosninga strax, þannig að ÓRG má klára sitt kjörtímabil, en sjá sóma sinn í að þegja á meðan.

Aðrir sem mega gjarnan missa sín að mínu mati eru Jón Sigurðsson, Árni Mathiesen, Geir H Haarde, Valgerður Sverrisdóttir, Björgvin G Sigurðsson, Guðni Ágústsson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Birgir Ármannsson, Össur Skarphéðinsson.

Reyndar bara sem flestir af þessum atvinnustjórnmálamönnum. Að mínu mati ættu stjórnmál að vera mun ódýrari fyrir ríkið. Enga aðstoðarmenn, meðallaun nýútskrifaðs háskólafólks, og engar risnur eða þóknun fyrir nefndarstörf. Ég vil hugsjónafólk.

3.11.08

Slugs

Þessi orðrómur, sem ég vísa í í síðustu færslu, er búinn að vera í gangi í amk. 5 daga núna, og það er hreint ótrúlegt að ekki hafi verið farið í saumana á þessu strax í fjölmiðlum. Nú eða þá Alþingi.

Meiri slugsararnir í þessum blessaða fréttageira og þingheimi. Þarf einhver að taka þá í kúrs í því hvernig venjulegir launamenn fá verkefni og ganga í þau, eða finna sér verkefni og klára þau.

Mér er spurn hvort við þurfum að vera með alla þessa þingmenn á launum?