1.2.09

Skrípó, 01.02.09: Helvítis andskotans Framsókn!

Spádómur: Þetta skrípó á ekki eftir að rata á margar málsmetandi bloggsíður.

Ég hef alltaf talið það mjög tvíbent að kalla stóran hóp fólks hænur... Djöfull er ég feginn að vera ekki í framboði!
Það hófst allt á kröfu. Mótmælandi: Lýðræði ekkert kjaftæði! Eftir 3 sleitulausa daga: Steingrímur J Sigfússon hugsar: Var það kýla berja slá eða berja kýla slá? Jóhanna Sigurðardóttir: Sigmundur! Komdu hérna og samþykktu stjórnarsáttmálann! Sté forhertur framsóknarmaður á bremsu sem hann átti bara alls ekkert í! Sigmundur Davíð Gunnlaugsson: En það stendur ekkert í sáttmálanum nema við munum redda heimilinum einhvernveginn og haldnar verða kosningar þegar tími er til!? Og bloggheimar loguðu af hinni réttlátu reiði hins upplýsta manns... Hænur gagga: Svikmundur! Framsókn! Framsókn! Ónei spilling! Framsókn! Ó nei! Ólafur Ólafsson! Ó nei ó nei. Og finnur Ingólfsson! Ó nei spilling! Þeir fara aftur í samstarf með íhaldinu!

5 ummæli:

Anonymous said...

Ég er ein af þessum hænum.

Sigmundur fyrir stjórnarlitin: Ég skal sko sína öllum að ég er búinn að skipta um bleyju á framsókn. Jóka og Steini, ég skal verja minnihlutastjórnina ykkar.

Sigmundur eftir stjórnarslitin: Ha, á að hrófla við auðmönnum? Ég hélt að við kyrrsettum bara eigur hælisleitenda og annarra öreiga. Nei, ég tek ekki þátt í svona rugli!


Svona sér þessi hæna málið.
Kv, Kolla

Anonymous said...

Það verður gaman að sjá hvaða fyrirsögn þessi fær á Smugunni

Nema þeim finnist þú ekki lengur málefnalegur og hlekkji alls ekkert á þessa ;)

Henrý said...

Kolla: Já. Fokking stjórnarskráin, að hún skuli ekki leyfa fólki bara að kyrrsetja fé.

Held samt að þú yrðir ekkert par hress þegar ríkisskattstjóri notaði þetta sem fordæmi og kyrrsetti eigur þínar af því að einhver sendi inn ábendingu um að þú hefðir unnið verk án þess að telja fram til skatts.

Annars er alveg hægt að kyrrsetja fé. Ef efnahagsbrotadeild eða fjármálaeftirlit myndi, I don't know, KÆRA EINHVERN? Hehe :)

#2: Jújú, þeir birta þetta. Fáir meira líbó en fólkið á Smugunni. Eða Smytthullet eins og hún heitir á frummálinu. Það er liðið á Flæmska Hattinum sem þú þarft að vara þig á.

Anonymous said...

Skv því sem skeði í haust þarf ekki að gera neinar breytingar á stjórnarskrárlögum til að kyrrsetja eigur fólks. En það er einmitt málið að það er enginn kærður. Sveiattan!

Og nota bene, ég á ekki lengur neinn pening þar sem sparnaðurinn var í hlutabréfasjóði og bankinn og fyrirtækin rænd innan frá. Skatturinn getur því gert sitt "versta" ;)

Anonymous said...

Úps gleymdi að skrifa undir. #4 er sem sagt ég ;)

Kveðja norður
Kolla